Fotbolti.net
11.10.26 - 15:51
Snæbjört Pálsdóttir

Hafrún kann vel við sig í bakverðinum: „Mjög örugg með stelpurnar“

Auglýsing
Hafrún Rakel Halldórsdóttir kann vel við sig í bakvarðarstöðunni hjá íslenska landsliðinu og segir liðið eiga enn meira inni þrátt fyrir fjögurra marka sigur á Króatíu.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir kann vel við sig í bakvarðarstöðunni hjá íslenska landsliðinu og segir liðið eiga enn meira inni þrátt fyrir fjögurra marka sigur á Króatíu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalandslið

Hafrún Rakel Halldórsdóttir segir að íslenska kvennalandsliðið eigi enn töluvert inni þrátt fyrir sannfærandi 4-0 sigur á Króatíu í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu.

Hafrún var í byrjunarliði Íslands á föstudaginn og lék í vinstri bakverðinum, þar sem hún tók virkan þátt í sóknarleik íslenska liðsins. 

„Mér fannst við mjög öruggar. Við vorum að skapa okkur færi og vorum bara óheppnar að koma ekki fleiri mörk út úr þessu í raun og veru. Annars fannst mér bara ganga vel heilt yfir,“ sagði Hafrún í samtali við Fótbolta.net.

Hafrún leikur með Brøndby í Danmörku þar sem hún er í mun sóknarsinnaðra hlutverki en hjá íslenska landsliðinu. Hún segist þó kunna vel við sig í bakvarðarstöðunni.

„Mér finnst það mjög skemmtilegt og ég er mjög örugg með stelpurnar í kringum mig. Það er bara talað vel við mig og mjög skemmtileg staða.“

Aðspurð um muninn á hlutverkunum hjá félagsliðinu og landsliðinu sagði Hafrún að um tvo ólíka leikstíla væri að ræða.

„Þetta eru náttúrulega bara tveir mismunandi stílar, hvernig liðin spila. Maður kemur inn í þetta verkefni og þá er bara fókus á það og maður skilur hitt eftir. En það er mjög gaman. Ég er mjög sóknarsinnuð í Danmörku.“

Hún segir jafnframt að vel gangi hjá Brøndby, sem sé komið áfram í Evrópukeppni. Hafrún er samningsbundin félaginu til sumars 2027 og segist ætla að skoða framhaldið þegar þar að kemur.

Þrátt fyrir góða stöðu Íslands í einvíginu við Króatíu segir Hafrún að ekkert megi gefa eftir fyrir seinni leikinn á þriðjudaginn.

„Náttúrulega hafa allir leikir sitt eigið líf og við þurfum bara að koma klárar inn í þennan leik. Það er margt sem við getum bætt frá síðasta leik þannig að við þurfum bara að fókusa á það. Það er seinni helmingurinn eftir.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.