Fotbolti.net
11.10.26 - 15:19
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu sturlað mark Ísaks

Ísak fagnaði markinu vel og innilega

Ísak fagnaði markinu vel og innilega

Canon

Mynd: EPA

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði algerlega stórbrotið mark fyrir Köln gegn Borussia Mönchengladbach í þýsku deildinni í dag.
Leikur Kölnar og Gladbach stendur enn yfir en Ísak skoraði á 26. mínútu.

Vörn Gladbach hreinsaði þá aukaspyrnu frá kantinum út fyrir teiginn þar sem Ísak beið. Hann lét vaða í fyrstu snertingu og smellti boltanum í samskeytin vinstra megin.

Sturlað mark hjá Skagamanninum sem fylgir þar eftir góðri frammistöðu með landsliðinu.

Þetta var fyrsta deildarmark Ísaks á tímabilinu og annað fyrir Köln frá því hann kom frá Fortuna Düsseldorf í fyrra.

Eins og áður kom fram er leikur Kölnar og Gladbach enn í gangi, en hefur þó verið stoppaður vegna óláta í stúkunni.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.