Alexandra: Fjögurra marka forskot breytir engu

Alexandra Jóhannsdóttir segir íslenska landsliðið ætla að halda áfram að sækja gegn Króatíu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alexandra Jóhannsdóttir segir íslenska landsliðið ætla að halda áfram að sækja gegn Króatíu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alexandra Jóhannsdóttir segir að íslenska kvennalandsliðið ætli sér að sækja til sigurs gegn Króatíu á þriðjudaginn þrátt fyrir að vera með fjögurra marka forskot eftir fyrri leik þjóðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu.
Ísland vann sannfærandi 4-0 sigur á útivelli á föstudaginn og er því í vænlegri stöðu fyrir seinni leikinn á Laugardalsvelli.
Alexandra var ánægð með frammistöðu íslenska liðsins og þá sérstaklega að liðinu hefði tekist að skapa sér færi og skora eftir uppbyggðan sóknarleik.
„Mér fannst það bara hafa verið mjög fínt, bara solid. Við vitum að við erum ógeðslega sterkar í föstum leikatriðum og sýndum það náttúrulega aftur. Mér fannst líka rosalega sterkt að ná marki í bara opnum leik.“
Ísland lék sókndjarfan fótbolta í fyrri leiknum þar sem bakverðir liðsins fóru hátt upp völlinn. Alexandra og Hildur Antonsdóttir þurftu því að gæta betur að jafnvæginu á miðjunni.
„Mér finnst bara fínt að við sýnum að við getum þetta. Þetta er eitthvað sem við eigum í vopnabúrinu,“ sagði Alexandra.
Hún segir að liðið muni halda áfram að leggja áherslu á sóknarleikinn í seinni viðureigninni.
„Ég held að það verði nokkuð svipað. Auðvitað eru nokkur atriði sem við erum að skerpa á en við ætlum aftur að sækja.“
Alexandra tók jafnframt skýrt fram að íslenska liðið ætlaði ekki að láta fjögurra marka forskotið hafa áhrif á hugarfarið.
„Við erum ekkert að fara í þennan leik til þess að okkur dugi náttúrulega jafntefli. Við erum með fjögurra marka forskot en við erum að fara inn í leikinn til þess að skora og til þess að vinna. Það er ekkert annað í boði.“
Alexandra vonast til að sjá sem flesta á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.
„Við lofum hörkuleik og flottum fótbolta.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
