11.10.26 - 15:40
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Ísak með stórbrotið mark í sigri Kölnar

Ísak skoraði eitt af mörkum tímabilsins

Mynd: EPA

Ísak skoraði eitt af mörkum tímabilsins

Mynd: EPA
Koln 2 - 1 Borussia M.
1-0 Isak Johannesson ('26 )
1-1 Joe Scally ('39 )
2-1 Said El Mala ('67 )
1-0 Isak Johannesson ('26 )
1-1 Joe Scally ('39 )
2-1 Said El Mala ('67 )

TENGT EFNI
Sjáðu sturlað mark Ísaks
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði eitt af mörkum tímabilsins þegar Köln vann 2-1 sigur á Borussia Mönchengladbach í þýsku deildinni í dag.
Hinn 23 ára gamli Skagamaður kom Köln yfir á 26. mínútu með sannkölluðu draumamarki. Aukaspyrna frá hægri var send inn á teiginn og vörn gestanna hreinsaði beint út á Ísak. Hann lét vaða í fyrstu snertingu og smellti boltanum í samskeytin vinstra megin.
Þetta var fyrsta deildarmark Ísaks á tímabilinu og verður það án efa í umræðunni þegar velja á mark ársins í Þýskalandi.
Bandaríkjamaðurinn Joe Scally jafnaði fyrir gestina þrettán mínútum síðar en Said El Mala kom Köln aftur yfir í síðari hálfleik. Hann er einn heitasti leikmaður Þýskalands og fékk verðskuldað tækifæri með landsliðinu hjá Jurgen Klopp í síðasta verkefni.
Stöðva þurfti leikinn undir lokin vegna óláta í stúkunni en fljótlega var hægt að halda áfram. Köln hélt út og fagnaði öðrum deildarsigri sínum á tímabilinu. Liðið er með sjö stig eftir fimm umferðir.

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Dortmund | 10 | +10 | 24 |
| 2 | Bayern | 10 | +20 | 22 |
| 3 | Freiburg | 10 | +11 | 22 |
| 4 | RB Leipzig | 10 | +18 | 21 |
| 5 | Leverkusen | 10 | +7 | 19 |
| 6 | Werder | 10 | +6 | 18 |
| 7 | Frankfurt | 10 | -4 | 15 |
| 8 | Stuttgart | 10 | 0 | 13 |
| 9 | Elversberg | 10 | -2 | 13 |
| 10 | Augsburg | 10 | +2 | 12 |
| 11 | Hoffenheim | 10 | -2 | 12 |
| 12 | Hamburger | 10 | -14 | 12 |
| 13 | Mainz | 10 | -3 | 10 |
| 14 | Köln | 10 | -4 | 10 |
| 15 | Paderborn | 10 | -7 | 10 |
| 16 | Schalke 04 | 10 | -6 | 7 |
| 17 | Union Berlin | 10 | -18 | 7 |
| 18 | Gladbach | 10 | -14 | 4 |