Fotbolti.net
11.10.26 - 18:28
Andri Stefánsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Víkings og ÍA: Sveinn Aron byrjar sinn fyrsta leik

Sveinn er að byrja sinn fyrsta leik.

Sveinn er að byrja sinn fyrsta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 hefst leikur Víkings og ÍA í efri hluta Bestu deildar karla. Víkingur tryggði Íslandsmeistaratitilinn gegn KR í síðasta leik. ÍA fóru létt með Breiðablik á Skaganum. Leikar enduðu með 4-1 sigri Skagamanna. Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins og hægt er að sjá þau hér fyrir neðan.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍA
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir þrjár breytingar á liði sínu eftir 2-1 útisigur gegn KR. Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson eru allir utan hóps. Afar líklegt er að Gylfi er að vera hvíldur og Daníel tekur út leikbann. Sölvi Stefánsson, Viktor Örlygur Andrason og Sveinn Aron Guðjohnsen koma inn.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu eftir 4-1 sigur gegn Breiðabliki. Haukur Andri Haraldsson fær sér sæti á bekknum og Guðmundur Þórarinsson kemur inn í hans stað.

Byrjunarlið Víkingur R.

  • 29. Aron Snær Friðriksson (m)
  • 4. Peter Oliver Ekroth (f)
  • 5. Sölvi Stefánsson
  • 8. Viktor Örlygur Andrason
  • 9. Helgi Guðjónsson
  • 15. Róbert Orri Þorkelsson
  • 21. Aron Elís Þrándarson
  • 25. Valdimar Þór Ingimundarson
  • 27. Sveinn Aron Guðjohnsen
  • 69. Ármann Ingi Finnbogason
  • 77. Stígur Diljan Þórðarson

Byrjunarlið ÍA

  • 1. Árni Marinó Einarsson (m)
  • 5. Baldvin Þór Berndsen
  • 8. Guðmundur Þórarinsson
  • 9. Viktor Jónsson
  • 10. Steinar Þorsteinsson
  • 11. Gísli Eyjólfsson
  • 13. Erik Tobias Tangen Sandberg
  • 17. Gísli Laxdal Unnarsson
  • 21. Böðvar Böðvarsson
  • 25. Markús Páll Ellertsson
  • 87. Styrmir Jóhann Ellertsson

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.27+5164
2KR27+3556
3Fram27+947
4ÍA27-138
5Breiðablik27-336
6Keflavík27-1130
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.