11.10.26 - 16:58
Brynjar Ingi Erluson
Brynjólfur, Hinrik og Sigurður Bjartur á skotskónum

Brynjólfur er kominn með fimm mörk í hollensku deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sigurður Bjartur kom inn af bekknum og skoraði í sigri Merida

Mynd: AD Merida

Brynjólfur Andersen Willumsson var enn og aftur á skotskónum með Groningen er liðið vann 5-1 sigur á Excelsior í Íslendingaslag í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Framherjinn skoraði í fyrstu þremur umferðum deildarinnar og svo eitt mark gegn Go Ahead Eagles rétt fyrir landsleikjatörnina og mætti ferskur eftir það verkefni.
Hann skoraði fjórða mark Groningen og gulltryggði liðinu sigurinn.
Fimmta deildarmark hans og er hann nú annar markahæsti leikmaður deildarinnar.
Ágúst Orri Þorsteinsson byrjaði hjá Excelsior í dag en fór af velli þegar hálftími var eftir.
Groningen er í 6. sæti með 14 stig en Excelsior í 8. sæti með 11 stig.
Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á sem varamaður hjá Merida og skoraði í 2-1 sigri á Pontevedra. Merida er í 11. sæti A-riðils með 9 stig eftir sjö leiki.
Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasunds sem tapaði fyrir Sarpsborg, 4-2, í norsku úrvalsdeildinni á meðan Viðar Ari Jónsson var á bekknum er HamKam vann 4-2 sigur á Start. Ham Kam er í 10. sæti með 26 stig en Álasund í 14. sæti með 21 stig.
Í B-deildinni voru nokkrir Íslendingar á ferðinni. Breki Baldursson og félagar í Åsane unnu 2-1 sigur á Atla Barkarsyni og hans mönnum í Sogndal. Atli var ekki í hópnum hjá Sogndal, en Breki á bekknum hjá Åsane.
Breki Baxter og Hinrik Harðarson byrjuðu báðir á bekknum hjá Egersund í 3-1 sigri liðsins á Hödd. Hinrik kom inn á þegar tuttugu mínútur voru eftir og skoraði rúmum tíu mínútum síðar. Þriðja deildarmarkið sem hann skorar fyrir Egersund.
Undir lokin kom Breki inn á sem varamaður og hjálpaði sínum mönnum að landa þessum sigri.
Davíð Snær Jóhannsson var þá í byrjunarliði Bryne sem tapaði fyrir Odd, 2-1.
Bryne er í 6. sæti með 38 stig, Egersund í 8, sæti með 32 stig, Sogndal í 14. sæti með 23 stig og Åsane í 15. sæti með 22 stig.