Fotbolti.net
01.07.04 - 13:05

Cisse til Liverpool (Staðfest)

Cisse til Liverpool (Staðfest)
Canon
Eins og allir vissu var Djibril Cisse leikmaður Auxerre í Frakklandi á leiðinni til Liverpool. Það var þó ekki skrifað undir neina samninga fyrr en í dag þegar hann var kynntur opinberlega sem leikmaður Liverpool. Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegar staðreyndir um þennan frábæra sóknarmann sem hefur það að markmiði að hrella varnarmenn Úrvalsdeildarinnar. Hann mun vera í treyju númer 9 hjá Liverpool.
1981: Djibril Cisse fæðist í Arles, Frkklandi þann 12. ágúst

1996: Cisse skrifar undir hjá Auxerre frá heimaliði hans Nimes. Auxerre kom auga á hann þegar hann var að spila með u-15 ára liði Nimes og voru á undan Montpellier að klófesta hann.

Mars 1999: Cisse spilar sinn fyrsta leik í frönsku deildinni en getur ekki komið í veg fyrir 1-0 tap gegn Paris St. Germain

Maí 1999: Cisse hjálpar unglingaliði Auxerre að vinna Coupe Gambardell (Franski unglingabikarinn)

Júní 2000: Cisse er besti maður Franska u-18 landsliðsins sem vinnur Evrópukeppnina. Hann skoraði sex mörk

2001/2002: Cisse er markahæstur í Frönsku deildinni fyrir Auxerre þegar hann skorar 22 mörk og hjálpar liði sínu að ná þriðja sæti deildarinnar og þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu.

Maí 2002: Cisse spilar sinn fyrsta landsleik fyrir Frakka á móti Belgum. Svo er hann valinn í Franska landsliðið sem fór á HM 2002 framyfir Nicolas Anelka.

2002/2003: Cisse spilar í Meistaradeildinni fyrir Auxerr en þeir detta út eftir riðlakeppnina og fara í UEFA bikarkeppnina.

Mars 2003: Aðdáendur Liverpool sjá Cisse fyrst sýna snilli sína þegar Rauði Herinn vinnur Auxerre 3-0 samanlagt í tveimur leikjum og kemst áfram í fjórðu umferð UEFA bikarsins.

Maí 2003: Cisse skorar frábært mark þegar Auxerre vinnur Lens og vinnur Frönsku bikarkeppnina.

Júní 2003: Cisse er í Franska landsliðinu sem vinnur Álfukeppnina.

Febrúar 2004: Cisse er rekinn af velli í leik með u-21 árs liðinu sem mistekst að komast áfram á HM u-21 liða. Hann fær fimm leikja bann sem útilokaði hann frá þáttöku á Evrópumótinu í Portúgal.

Maí 2004: Cisse spilar sinn síðasta leik fyrri Auxerre og undirbýr sig undir stóru söluna til Liverpool.

Júlí 2004: Cisse kynntur opinberlega sem leikmaður Liverpool.

- Samtals hefur Cisse skorað 70 mörk í 128 deildarleikjum fyrir Auxerre.

- Hann er 78 kg

- Og hann er 183 cm á hæð.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.