01.07.04 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Aranda til Sevilla (Staðfest)

Aranda er hér til vinstri.


Aranda er hér til vinstri.

Sevilla hefur fengið sóknarmanninn Carlos Reina Aranda frá Villareal á 800 þúsund evrur eða um hálfa milljón punda. Aranda er sterkur framherji en hann lék á síðustu leiktíð með Albacete og skoraði átta mörk sem að áttu stóran þátt í því að liðið hélt sæti sínu í deildinni.
Aranda sem að er 23 ára hefur ekki verið í náðinni hjá Villareal og verið í láni hjá Albacete og Numancia síðustu tvö ár. Hjá Sevilla hittir hann fyrir annan sterkan framherja sem að er nýkominn til liðsins, það er Ariza Makukula sem að kom frá franska liðinu Nantes eftir að hafa verið á láni hjá Real Valladolid.
