01.07.04 - 15:32
Hughes til Charlton (Staðfest)




Charlton Athletic hafa gengið frá samningi við Bryan Hughes leikmanni Birmingham City. Hughes, sem er 28 ára gamall, skrifaði undir 3 ára samning við Lundúnarliðið eftir að hafa hafnað tilboðinu frá Birmingham. Hann getur spilað bæði á miðri miðjunni sem og á vinstri vængnum. Hann spilaði 291 leik fyrir Birmingham og skoraði í þeim 42 mörk en hann kom til þeirra frá Wrexham árið 1997 fyrir 750,000 pund.
