Fotbolti.net
01.07.20 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Guardiola um Sane: Telur að hann verði betri og ánægðari hjá Bayern

Leroy Sane.

Leroy Sane.

Canon

Mynd: Getty Images

Leroy Sane er á leið frá Manchester City til Bayern München eins og <a href="https://fotbolti.net/news/30-06-2020/bild-sane-fra-city-til-bayern-er-klart" target="_blank">greint var frá í gær</a>.

<i>„Það stefnir allt í það en það á eftir að ganga algjörlega frá því,"</i> segir Pep Guardiola, stjóri City.

<i>„Það er verið að klára einhver smáatriði en hann er á leið til München. Við óskum honum alls hins besta og þökkum kærlega fyrir árin með okkur."</i>
„Hann mun eiga næsta kafla hjá frábæru félagi í Bayern München. Hann vildi fara. Fólk ræður yfir sínu lífi og hann vildi færa sig um set. Ég hefði viljað hafa hann áfram en hann telur að hann verði betri og ánægðari í Bayern."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.