17.09.26 - 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alghoul seldur frá Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lykilmaður þegar Keflavík fór upp úr Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur gengið frá sölu á Muhamed Alghoul til Horns Al-Fidaa í Sýrlandi. Frá þessu greinir Keflavík á miðlum sínum í dag.
Mua hefur verið í stóru hlutverki í liði Keflavíkur, kom fyrst sumarið 2023 og svo aftur fyrir tímabilið 2025. Hann var maður leiksins þegar Keflavík komst upp í Bestu deildina í fyrra eftir umspil Lengjudeildarinnar og hefur spilað stórt hlutverk í Bestu á þessu tímabili.
Hann er þrítugur sóknarmaður sem bæði með palestínskan og króatískan ríkisborgararétt.

TENGT EFNI
Segir Alghoul og Conteh einbeitta á verkefnið eftir uppákomuna á dögunum
Það kom upp atvik á æfingu Keflavíkur fyrr í sumar þar sem Mua nefbrotnaði eftir viðskipti sín og Alpha Conteh. Mua missti af tveimur leikjum vegna nefbrotsins en sneri svo aftur í liðið og lék vel. Báðir Alghoul bræðurnir, Mua og Halid, eru nú farnir frá Keflavík en Alpha er áfram leikmaður liðsins.
Úr tilkynningu Keflavíkur
Muhamed átti stóran þátt í að koma Keflavík aftur upp í Bestu deildina síðasta haust. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp ellefu í Lengjudeildinni og fór síðan á kostum í umspilinu þar sem hann lagði upp fimm mörk.
Muha hefur síðan verið mikilvægur hlekkur í Keflavíkurliðinu sem hefur fest sig í sessi í Bestu deildinni á ný.
Við þökkum Muha kærlega fyrir hans framlag til Keflavíkur, innan sem utan vallar, og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi.
Takk fyrir allt Muha