Fotbolti.net
01.07.26 - 11:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Damir orðaður við Þór

Damir orðaður við Þór
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, er í Dr. Football þætti dagsins orðaður í burtu frá Grindavík.

Miðvörðurinn Damir, sem er fæddur 1990, samdi við Grindavík í vetur eftir rúman áratug í græna hluta Kópavogs. Hann varð Íslandsmeistari með Blikum 2022 og 2024.

Damir er fyrirliði Lengjudeildarliðsins og lykilmaður í liðinu sem berst í neðri hluta deildarinnar.
Þáttarstjórnandinn Hjörvar Hafliðason orðaði Damir við Þór í þættinum og segir að Grindavík myndi væntanlega vilja fá eitthvað fyrir sinn mann.

Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, sagði við Fótbolta.net að Þór ætlaði að reyna fá inn leikmann í hverja línu í komandi félagaskiptaglugga sem opnar 16. júlí.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.