Ganga frá kaupum á El Khannouss (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýska félagið Stuttgart er búið að ganga frá kaupum á marokkóska landsliðsmanninum Bilal El Khannouss, sem kemur úr röðum Leicester City.

TENGT EFNI
El Khannouss til Stuttgart (Staðfest)
El Khannouss lék á láni hjá Stuttgart á síðustu leiktíð og kom með beinum hætti að 18 mörkum í 44 leikjum er Stuttgart komst alla leið í úrslitaleik þýska bikarsins og endaði í fjórða sæti deildarinnar, auk þess að detta úr leik í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Khannouss er aðeins 22 ára gamall og stóð sig vel með Stuttgart, sem ákvað að festa kaup á honum. Leicester vildi ekki missa leikmanninn en neyddist til að selja hann eftir afar óvænt fall úr Championship deildinni. Liðið féll annað árið í röð og leikur því í League One deildinni á næstu leiktíð, aðeins rétt rúmu ári eftir að hafa síðast leikið í úrvalsdeildinni.
Stuttgart greiðir í heildina rúmlega 20 milljónir evra fyrir leikmanninn. 3,5 milljónir voru greiddar fyrir lánssamninginn og aðrar 18 milljónir til að nýta kaupákvæðið.

Bilal El Khannouss has completed a permanent transfer to Bundesliga side VfB Stuttgart for an undisclosed fee.
— Leicester City (@LCFC) July 1, 2026

Mynd: EPA