Fotbolti.net
01.07.26 - 09:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jacquet kynntur hjá Liverpool - „Stór draumur"

Jacquet kynntur hjá Liverpool - „Stór draumur"
Canon

Mynd: Liverpool

Franski varnarmaðurinn Jeremy Jacquet var í dag kynntur formlega sem leikmaður Liverpool en félagaskiptin frá Rennes voru kláruð í vetur.

Hann er tvítugur Fraki sem uppalinn er hjá Rennes. Hann gat ekki leikið með Rennes seinni hluta tímabilsins vegna meiðsla á öxl.
Jeremy Jacquet gengur í raðir Liverpool í sumar (Staðfest)
TENGT EFNI

Jeremy Jacquet gengur í raðir Liverpool í sumar (Staðfest)

Hann er U21 landsliðsmaður, Liverpool greiðir 55 milljónir punda og getur sú upphæð hækkað um 5 milljónir punda.

„Mér líður mjög vel, fyrstu kynni eru góð og ég er glaður að hefja minn tíma hér. Mér líður vel hér og er spenntur. Fyrir mig er þetta stór draumur. Þetta er stórt félag, þetta er stór draumur fyrir mig," segir Jacquet í viðtali sem birt var á heimasíðu Liverpool.

Óvíst er á þessum tímapunkti hvaða númer nýi leikmaðurinn fær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.