Risaverðmiði á skotmarki Liverpool og Arsenal

Barcola skoraði fyrir Frakka gegn Svíum á HM í gær.

Mynd: EPA

Matias Fernandez-Pardo er sagður á blaði Liverpool.

Mynd: EPA

Ayyoub Bouaddi, til hægri.

Leikar eru heldur betur farnir að æsast á heimsmeistaramótinu og fara einnig að gera það á leikmannamarkaðnum von bráðar. Hér er samantekt á öllu helsta slúðrinu.
Paris St-Germain verðmetur franska kantmanninn Bradley Barcola (23) á yfir 116 milljónir punda. PSG segist ekki þurfa að selja leikmanninn en Liverpool og Arsenal hafa áhuga á að fá hann í sínar raðir. (Athletic)
Liverpool leitar að kantmanni og meðal leikmanna sem hafa verið orðaðir við félagið er hinn belgíski Matias Fernandez-Pardo (21) hjá Lille. (Express)
Everton býst við að kaupa kantmanninn Tyrique George (20), sem var á láni frá Chelsea á síðasta tímabili, alfarið í sumar. (TeamTalk)
Chelsea vonast til að bæta við sóknarflóru sína með því að fá sóknarmanninn Eli Junior Kroupi (20), franska U21 landsliðsmanninn sem sem átti ljómandi fínt tímabil og skoraði þrettán mörk fyrir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni. (Caught Offside)
Arsenal, Manchester City, Manchester United og Bayern München hafa áhuga á marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi (18). Lille vill að minnsta kosti 70 milljónir punda og að halda honum á lánssamningi. (Mail)
Liverpool, Arsenal, Manchester United og Borussia Dortmund hafa áhuga á japanska miðjumanninum Kaishu Sano (25) sem skoraði fyrir Japan í tapinu gegn Brasilíu í 32-liða úrslitum HM. (Bulinews)
Tottenham hefur náð munnlegu samkomulagi við Sandro Tonali (26), miðjumann Newcastle, um kaup og kjör og er tilbúið að borga um 100 milljónir punda fyrir ítalska landsliðsmanninn. (TeamTalk)
Samuel Chukwueze (27), kantmaður AC Milan, hefur hafnað tyrkneska félaginu Trabzonspor. Nígeríumaðurinn var á láni hjá Fulham á síðasta tímabili en vill vera áfram í Mílanó eftir að Fulham ákvað að kaupa hann ekki. (Daily Post)
Brentford er í viðræðum við Callum Wilson (34) en samningur enska sóknarmannsins við West Ham er runninn út. (Athletic)