Fotbolti.net
01.07.26 - 16:16
Ívan Guðjón Baldursson

Saibari til Bayern (Staðfest)

Saibari til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru búnir að festa kaup á marokkóska sóknarleikmanninum Ismael Saibari.
Saibari búinn að samþykkja tilboð frá FC Bayern
TENGT EFNI

Saibari búinn að samþykkja tilboð frá FC Bayern

Saibari er 25 ára gamall og gerir fimm ára samning við Bayern, sem borgar 55 milljónir evra til að kaupa leikmanninn úr röðum PSV Eindhoven.

Saibari var lykilmaður hjá PSV og kom að 28 mörkum í 37 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er auk þess algjör lykilmaður í sterku landsliði Marokkó og hefur verið gríðarlega mikilvægur á upphafi heimsmeistaramótsins.

Saibari er sóknartengiliður að upplagi en getur einnig spilað á köntunum og í fremstu víglínu. Anthony Gordon var helsta skotmark Bayern en hann skipti til Barcelona svo þýska stórveldið snéri sér að Saibari.

Saibari til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.