Fotbolti.net
01.07.26 - 19:34
Elvar Geir Magnússon

Þrír í enska landsliðinu fá algjöra falleinkunn

Djed Spence í leiknum gegn Kongó.

Djed Spence í leiknum gegn Kongó.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane var að sjálfsögðu besti maður enska landsliðsins gegn Kongó í 32-liða úrslitum HM. Fyrirliðinn skoraði tvívegis og bjargaði enska liðinu eftir að það hafði verið undir í hálfleik.

Í einkunnagjöf Mirror eftir leikinn var Kane hæstur í enska liðinu með 8 í einkunn og sagt að hann hafi stigið upp þegar England þurfti mest á honum að halda.

Þrír í enska liðinu fá falleinkunn, eru lægstir með 4 í einkunn. Það eru markvörðurinn Jordan Pickford, bakvörðurinn Djed Spence og kantmaðurinn Noni Madueke.

Sagt er að Pickford hafi átt slakt mót hingað til. Slök frammistaða Spence komi ekki á óvart þar sem hann sé að koma úr lélegu tímabili hjá Tottenham. Þá hafi Madueke verið dapur bæði varnar- og sóknarlega í leiknum í dag.
Sjáðu HM mörkin: Kane sá um Kongó
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Kane sá um Kongó

Fleiri fá lélega einkunn; Ezri Konsa, Marc Guehi, Nico O’Reilly og Marcus Rashford fá allir 5 í einkunn.

Elliot Anderson fær 6 og þá fá Declan Rice og Jude Bellingham 7 líkt og varamennirnir Bukayo Saka og Anthony Gordon sem áttu flottar innkomur.

England mun mæta Mexíkó í 16-liða úrslitum, á hinum sögufræga Azteca velli á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags).
Harry Kane var besti leikmaður Englands.

Harry Kane var besti leikmaður Englands.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.