01.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
De Goey til Stoke. (Staðfest)
Stoke City hefur fengið markmanninn Ed De Goey frítt. De Goey lék seinast með Chelesa og á yfir 100 leiki að baki fyrir þá bláu í úrvalsdeildinni en hann lék með þeim í um 6 ár. De Goey sem er 36 ára á einnig 31 landsleik að baki fyrir Holland. Hann skrifaði undir 2 ára samning við Stoke og mun styrkja liðið mikið.
