Fotbolti.net
01.08.17 - 22:31
Orri Rafn Sigurðarson

Addó: Stórt hrós á drengina

Auglýsing
Addó: Stórt hrós á drengina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

\"Við tökum þetta stig og virðum þetta stig og svo þetta hafi ekki verið skemmtilegasta leikur í heimi en við ætluðum bara ná okkur í helst 3 stig en ef það væri bara eitt stig í boði í lokin þá ætluðum við bara virða það og taka það\"

Sagði Addó eftir 2-2 Jafntefli gegn Fram á heimavelli í dag

\"Það sem þeir eru hættulegir í eru föst leikatriði þeir eru með rosalega öfluga sentera upp á topp sem eru sterkir í loftinu þannig við vorum líka kannski að hækka okkar lið en við vorum aðeins varnarsinnaðri í dag en við höfum verið \"

Addó breytti til í dag og spilaði með t vo djúpa og ÍR-ingar voru mjög passívir og varnarsinnaðir en þeir hafa verið mjög sókndjarfir í allt sumar

\" Hann kom bara svo seint í gær og kom hérna hlaupandi á æfingu sem er nátturlega bara seinasta æfing fyrir leik mjög létt og þæginleg og við ákvaðum það bara leyfa honum að komast í hópinn \"

ÍR-ingar Fengu Renato Punyed til liðs við sig frá ÍBV til að styrkja sig í sumar en hann var ekki í hóp í dag

\"Ég verð bara fá nota tækifærið og hrósa drengjunum mínum fyrir að halda klefanum ferskum og vera jákvæðir það sýnir mér að þeir hafa trú á verkefninu sem þeir eru að gera ég sendi bara stórt hrós á drengina við lendum 2-1 undir og það hefðu mörg lið hrunið miða við það sem undan er gengið þeir sýna frábæran karakter og ná að jafna í dag mikið hrós á þá \"

Sagði Addó um stemminguna í hópnum á æfingum og leikjum og er gífurlega stoltur af sínum drengjum og þeirra baráttu í sumar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.