Evrópu Niko: Förum út og berjumst fyrir þetta merki

Niko og félagar að fagna sigurmarki leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Niko og félagar að fagna sigurmarki leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar tóku á móti ísraelsku meisturunum, Hapoel Be'er Sheva í undankeppni Meistaradeildarinnar og unnu sögulegan sigur í kvöld. Leiknum lauk með 2-1 sigri Víkinga en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem íslenskt lið vinnur lið frá Ísrael í Evrópukeppni. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Nikolaj Hansen, sem skoraði bæði mörk Víkings, eftir leikinn.
„Tilfinningin er mjög fín, ég er aðeins þreyttur núna en á sama tíma er ég sáttur að við áttum góðan leik. Frammistaðan var frábær í dag, frábær fyrri hálfleikur hjá okkur og við hefðum átt að vera komnir í svona 2-0 þar.''
Svipað og gegn Györ heima fengu Víkingar urmul af færum sem fóru forgörðum en ná samt sem áður að vinna leikinn.
„Ég hefði 100% vilja skora fleiri mörk, en á sama tíma veit maður hvað það er erfitt að spila þessa Evrópuleiki. En við á okkar heimavelli, með okkar stuðningsfólk, viljum bara vinna og skora fleiri mörk.''
Niko skoraði bæði mörk Víkinga í dag og er alls kominn með 17 mörk fyrir Víking í Evrópukeppnum.
„Já ég er ánægður, ég elska að skora, Evrópuleikirnir hafa verið að ganga ótrúlega vel fyrir mig en á sama tíma er liðið bara að spila vel og ég geri bara mitt og skora.''
VAR-tæknin var með Víkingum í liði í dag en Hapoel skoraði mark í stöðunni 1-1 sem var sem betur fer tekið af vegna rangstöðu. Vill Niko fá VAR í Bestu deildina?
„Já og nei, þetta er erfið spurning. Ég hata þegar menn þurfa að bíða lengi og þetta tekur of langan tíma. Gefa kannski nokkurra sentímetra vafa en ekki vera að taka af mörk út af pínulitlum atriðum. Á sama tíma þá veit ég hversu erfitt það er að vera dómari og þetta er smá hjálp fyrir þá.''
Víkingur fer út til Ungverjalands, þar sem seinni leikurinn fer fram, með eins marks forskot. Hvað þurfa Víkingar að gera til þess að klára einvígið?
„Við verðum bara að halda áfram að spila okkar leik og fara út og berjast fyrir klúbbinn og fyrir þetta merki, það er það eina sem við þurfum að gera,'' sagði Niko og benti á Víkingsmerkið.




