Fotbolti.net
01.08.18 - 20:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lárus Orri: Dagarnir verið mjög langir síðan upp á Skaga

Auglýsing
Lárus Orri var ánægður með stigin þrjú.

Lárus Orri var ánægður með stigin þrjú.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, kom sáttur í viðtal eftir 3-0 sigur gegn Njarðvík í Inkasso-deildinni í dag.

„Þetta eru mjög kærkomin stig. Dagarnir eru búnir að vera langir síðan upp á Skaga, það var gott að komast á völlinn aftur. Ég er mjög ánægður með stigin,\" sagði Lárus, en Þór tapaði gegn ÍA 5-0 í síðustu umferð. Þeir ætluðu sér að koma til baka í þessum leik.
Jóhann Helgi Hannesson er kominn aftur í Þór frá Grindavík þar sem hann náði sér ekki á strik. Jóhann finnur sig vel í Þór og hann var búinn að skora eftir að hafa verið inn á vellinum í þrjár mínútur.

„Þetta kom í gær, um þetta leyti í gær. Það var mjög kærkomið að fá hann heim og það var alveg bókað að hann myndi skora um leið og hann myndi koma inn á. Það vissu allir.

Þór er að berjast um að komast upp í Pepsi-deildina en sú barátta er mjög hörð. „Í stöðunni sem við erum komnir í væri galið að stefna ekki á annað en að fara upp.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.