Fotbolti.net
15.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Emiliano Martínez er ekki til sölu

Emiliano Martínez er ekki til sölu
Canon

Mynd: EPA

Argentínski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Martínez er eftirsóttur og hefur meðal annars verið orðaður við Juventus, en Damian Vidagany stjórnandi hjá Aston Villa segir hann ekki vera til sölu.
Martínez er 33 ára gamall og á ennþá þrjú ár eftir af samingi hjá Villa. Hann er upptekinn þessa dagana með Argentínu á HM þar sem landsliðið reynir að verja heimsmeistaratitilinn frá því í Katar. Argentína mætir Englandi í undanúrslitum í kvöld.

„Martínez verður áfram hjá okkur, við höfum engan áhuga á því að selja hann í sumar," segir Vidagany.

„Liðið þarf á honum að halda, hann er leiðtogi í klefanum og býr yfir mikilli reynslu. Hann er lykilpartur af áformum okkar fyrir næstu leiktíð."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.