Fotbolti.net
14.07.26 - 23:56
Ívan Guðjón Baldursson

Deschamps spurði fjölmiðlamenn út í dómarann

Deschamps spurði fjölmiðlamenn út í dómarann
Canon

Mynd: EPA

Didier Deschamps, fráfarandi landsliðsþjálfari Frakklands, var svekktur eftir tap gegn Evrópumeisturunum frá Spáni í undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins fyrr í kvöld.
Deschamps: Rangar ákvarðanir og tæknileg mistök
TENGT EFNI

Deschamps: Rangar ákvarðanir og tæknileg mistök

Deschamps gagnrýndi spilamennsku sinna manna og sagði tapið vera þeim sjálfum að kenna, en gagnrýndi einnig dómara leiksins. Sá heitir Iván Barton og kemur frá El Salvador.

„Ég er með spurningu fyrir ykkur... er þessi dómari á nægilega góðu stigi til þess að dæma undanúrslitaleik á heimsmeistaramóti?" spurði Deschamps nokkuð biturlega, en leikurinn var almennt talinn vel dæmdur þó að Barton sé lítið fyrir að flauta eða gefa spjöld.

Rayan Cherki, sem kom inn af bekknum í tapinu, neitaði að kenna dómaranum um.

„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur en við getum ekki kennt dómaranum um. Við spiluðum ekki nógu vel, við spiluðum ekki fótboltann sem við erum vanir að spila á meðan Spánverjar léku sinn leik," sagði Cherki.

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
TENGT EFNI

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur

Deschamps spurði fjölmiðlamenn út í dómarann
Canon

Mynd: EPA

Deschamps spurði fjölmiðlamenn út í dómarann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.