Fotbolti.net
15.07.26 - 11:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Glugginn opnar á morgun en Sara Björk má ekki spila

Sara Björk er mætt heim í Hauka eftir 18 ára fjarveru.

Sara Björk er mætt heim í Hauka eftir 18 ára fjarveru.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar á morgun, 16. júlí. Þá geta innlend félagaskipti farið stax í gegn.

Leikmenn sem eru að koma erlendis frá í íslensku deildirnar geta hins vegar ekki fengið leikheimild fyrr en daginn eftir að glugginn opnar.

Kvennalið Hauka á leik á morgun, útileik gegn Keflavík í Lengjudeildinni, og er fyrrum landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir að fá félagaskipti frá Sádi-Arabíu. Hún fær ekki leikheimild fyrr en í fyrsta lagi á föstudag og spilar því ekki gegn Keflavík.

Upplýsingar frá KSÍ
Félög geta hafið skráningu alþjóðlegra félagaskipta í FIFA TMS fyrir opnun félagaskiptaglugga en KSÍ getur þó ekki óskað eftir alþjóðlegri leikheimild frá fyrra knattspyrnusambandi leikmanns fyrr en glugginn hefur opnað. Leikmenn sem koma erlendis frá geta því í fyrsta lagi fengið leikheimild 17. júlí 2026, að því gefnu að öll gögn séu rétt og fullnægjandi.

Fyrsti leikur Söru, ef allt gengur að óskum með leikheimildina, verður því annan föstudag, 24. júlí, þegar HK kemur í heimsókn á Ásvelli.
Sara Björk ræddi við Breiðablik - „Það var alltaf Haukar"
TENGT EFNI

Sara Björk ræddi við Breiðablik - „Það var alltaf Haukar"

Í Bestu deildum karla og kvenna lokar glugginn í lok dags 12. ágúst, en í Lengjudeild karla, Lengjudeild kvenna og 2. deild karla lokar hann 29. júlí.

Jafnframt lokar félagaskiptatímabil fyrir 2. deild kvenna, 3. deild karla, 4. deild karla, 5. deild karla og utandeild karla þann 29. júlí.
Glugginn opnar á morgun en Sara Björk má ekki spila
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta10+1024
2KR9+1319
3Haukar8+617
4HK9+314
5Selfoss8+113
6ÍA9+511
7Keflavík9+210
8FHL9-110
9Völsungur10-48
10Tindastóll9-353
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.