Fotbolti.net
14.07.26 - 19:01
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeildin: Víkingur hafði betur gegn ungversku meisturunum

Meistaradeildin: Víkingur hafði betur gegn ungversku meisturunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ETO Györ 2 - 2 Víkingur R. (2-3 samanlagt)
0-1 Daníel Hafsteinsson ('34 )
1-1 Milán Vitális ('38 , víti)
2-1 Sveinn Gísli Þorkelsson ('45+1, sjálfsmark)
2-2 Gylfi Þór Sigurðsson ('55 )
Lestu um leikinn: ETO Györ 2 - 2 Víkingur R.
Íslandsmeistarar Víkings R. heimsóttu ungversku meistarana í liði ETO Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í dag, eftir að hafa unnið fyrri leikinn 1-0 í Fossvogi.

Heimamenn byrjuðu betur í Györ og fengu dauðafæri á upphafsmínútunum. Leikurinn jafnaðist svo út og skoraði Daníel Hafsteinsson eftir vel útfærða hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni.

Skömmu síðar jöfnuðu heimamenn stöðuna í seinni leiknum með marki úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Óskars Borgþórssonar innan víatateigs og náðu þeir svo forystunni í uppbótartíma fyrri hálfleiks, þegar Sveinn Gísli Þorkelsson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Slakur skalli frá leikmanni Györ hafði viðkomu í öxl Sveins og breytti þannig um stefnu.

Staðan var því 2-1 fyrir Györ í leikhlé og 2-2 í einvíginu í heild og endurheimtu Víkingar forystuna eftir flotta sókn í síðari hálfleik þegar marktilraun Daníels breytti um stefnu af Gylfa og endaði í netinu. Íslandsmeistararnir sýndu mikla þolinmæðisvinnu í aðdraganda marksins.

Víkingar voru talsvert sterkari í seinni hálfleik heldur en í þeim fyrri og komust nálægt því að bæta öðru marki við, en tókst ekki. Heimamenn í Györ reyndu að jafna einvígið á lokamínútunum en sköpuðu ekki mikla hættu.

Lokatölur urðu því 2-2 í Ungverjalandi, 3-2 í heildareinvíginu, og mæta Víkingar sterkum andstæðingum í næstu umferð - Ísraelsmeisturum Hapoel Be'er Sheva.
Meistaradeildin: Víkingur hafði betur gegn ungversku meisturunum
Canon

Mynd: Maté Dalmay

Meistaradeildin: Víkingur hafði betur gegn ungversku meisturunum
Canon

Mynd: Maté Dalmay

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.