Fotbolti.net
15.07.26 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ítalíumeistararnir í viðræðum um tvo leikmenn Tottenham

Ítalíumeistararnir í viðræðum um tvo leikmenn Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, muni að öllum líkindum yfirgefa félagið í sumar.
Það er mikill áhugi á Romero og eru Ítalíumeistarar Inter í viðræðum við Tottenham þessa dagana.

Inter er í leit að miðverði og vængbakverði og hefur áhuga á Romero og Djed Spence sem leika báðir fyrir Tottenham.

Romero, sem er með þrjú ár eftir af samningi, kostar 50 milljónir evra og hefur einnig verið orðaður við Barcelona og Atlético Madrid meðal annars.

Spence, sem á einnig þrjú ár eftir auk möguleika á auka ári, er búinn að hækka í verði eftir flotta frammistöðu með Tottenham og enska landsliðinu. Hann var valinn í landsliðshóp Englands fyrir HM og er talið að Spurs vilji fá svipaða upphæð í kassann og fæst fyrir Romero.

Romero og Spence mætast í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld eftir að hafa komist nálægt afar óvæntu falli úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð.

Romero er 28 ára gamall og þykir einn af betri miðvörðum heims, ef ekki fyrir slæman ávana að sækja sér rauð spjöld, á meðan Spence verður 26 ára í ágúst og er byrjaður að springa vel út.

Þess má geta að Inter hefur mikinn áhuga á Curtis Jones, miðjumanni Liverpool, en Andoni Iraola nýr þjálfari stórveldisins segist vilja halda honum innan félagsins.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Ítalíumeistararnir í viðræðum um tvo leikmenn Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.