Flytur frá Berlín til Rómar (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski miðvörðurinn Danilho Doekhi er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Lazio á Ítalíu.

TENGT EFNI
Falur á frjálsri sölu eftir að hafa spilað hverja einustu mínútu
Doekhi skiptir yfir til Lazio eftir fjögur ár sem leikmaður Union Berlin í þýska boltanum. Hann var mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu en neitaði að skrifa undir nýjan samning.
Doekhi er 28 ára gamall og hefur ekki misst af einni einustu mínútu í efstu deild þýska boltans síðan í janúar 2024. Hann hefur ekki verið meiddur, veikur eða þreyttur í tvö og hálft ár.
Doekhi lék á sínum tíma 13 leiki fyrir yngri landslið Hollands en hefur ekki fengið tækifæri með A-landsliðinu enda er rosaleg samkeppni um miðvarðarstöðurnar þar.
Hollendingurinn er fenginn til að fylla í skarðið fyrir Mario Gila sem var seldur til AC Milan á dögunum.
Doekhi er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Lazio í sumar eftir Alfonso Pedraza sem kom úr röðum Villarreal á frjálsri sölu.

Il nostro nuovo N.5??#WelcomeDoekhi#AvantiLazio pic.twitter.com/3LA4pnhpC8
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) July 14, 2026

Mynd: EPA