Jóhann Kristinn: Mér er að ganga illa að fá þær til að trúa því hvað þær eru góðar
Auglýsing

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður ömurlega''', sagði Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar eftir svekkjandi 0-1 tap gegn Fram í 12. umferð Bestu Deildar kvenna.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 1 Fram
„Okkur finnst við hafa brugðist stuðningsmönnum, því margir þeirra völdu okkar leik fram yfir undanúrslitin á Heimsmeistaramótinu, við ætlupum að gefa af okkur góða frammistöðu og sigur og þess vegna fannst mér við bregðast þeim.''
Í fyrri hálfleik var Þróttur meira og minna með boltann allan tímann og skapaði meiri færi heldur en Fram.
„Það telur ekkert. Við vorum ekki nógu góðar til að vinna og það er það eina sem skiptir máli.''
Í gær bárust þær fréttir að Þórdís Elva Ágústsdóttir hefði gengið til liðs við Breiðablik frá Þrótti og Jóhann var spurður út í það.
„Breiðablik hefur haft augastað á henni og vildi fá hana eftir tímabilið þegar samningurinn hennar rann út. Hún fer hinsvegar fyrr og allt gert í góðu og vonum að henni gangi vel, bara ekki á móti okkur.''
Einnig bárust þær fréttir að Katie Cousins hefði skrifað undir samning við Þrótt, og kemur hún frá Damaiense í Portúgal.
„Hún gefur mikil gæði og reynslu inn í þetta lið. Eins og staðan er núna og þegar gengur illa hjá liðum er erfitt að fá sjálfstraustið í gang eins og sést aðeins á okkur núna. Mér er að ganga illa að fá þær til að trúa því hvað þær eru góðar því þær eru ógeðslega góðar.''
Bríet Fjóla, leikmaður Þór/KA, er líklega á leiðinni í Þrótt og var Jói spurður að því.
„Ég held það sé mjög líklegt, maður hefur heyrt þessar sögur líka. Akkúrat núna er ég með mikinn fókus á okkar stelpur til að spila á sinni eðlilegri getu og jafnvel meira en það því það er það sem við þurfum.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

TENGT EFNI
Þórdís Elva í Breiðablik (Staðfest)
„Breiðablik hefur haft augastað á henni og vildi fá hana eftir tímabilið þegar samningurinn hennar rann út. Hún fer hinsvegar fyrr og allt gert í góðu og vonum að henni gangi vel, bara ekki á móti okkur.''
Einnig bárust þær fréttir að Katie Cousins hefði skrifað undir samning við Þrótt, og kemur hún frá Damaiense í Portúgal.

TENGT EFNI
Katie Cousins í fjórða sinn í Þrótt (Staðfest)