Þjálfari Györ vonsvikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Efráin Juárez þjálfari Eto Györ var svekktur en vildi ekki gagnrýna lið sitt eftir 2-2 jafntefli við Víking í síðari leik liðanna í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu fyrr í kvöld. Víkingar sem leiddu eftir fyrri leikinn 1-0 fara áfram eftir úrslit kvöldsins og lið Györ þarf að gera sér að góðu að fara í 2.umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Sölvi með gæsahúð: Svo stoltur sem þjálfari
„Við byrjuðum leikinn frábærlega, fengum nokkur tækifæri til þess að skora en tókst ekki að skila boltanum í netið. Fáum svo á okkur mark úr föstu leikatriði sem við vorum undirbúnir undir.“
Lið Györ leiddi þrátt fyrir allt 2-1 í hálfleik en þegar út í síðari hálfleik kom voru það Víkingar sem stýrðu ferðinni fyrst um sinn.
„Í upphafi seinni hálfleiks skorti okkur hraða, við gerðum skiptingar en þær gengu ekki upp og í raun skorti okkur breidd til þess að liðið gæti fengið fram þá frammistöðu sem þurfti til að skila okkur áfram.“
„Ég er vonsvikinn og þá sérstaklega fyrir hönd leikmanna sem lögðu allt sitt í þetta. Við stjórnuðum fyrri hálfleiknum og fengum færi en það skorti gæðin til þess að klára þau.“

Heimild: M4SPORT