Bjóða Gyökeres í skiptum fyrir Alvarez - Liverpool hefur samband við PSG

Julian Alvarez er á óskalista Arsenal.

Mynd: EPA

Arteta og Gyökeres.

Mynd: EPA

Liverpool með augastað á Barcola.

Mynd: EPA

Romero gæti verið á förum frá Tottenham.

Mynd: EPA

Julian Alvarez er á óskalista Arsenal.

Mynd: EPA

Englandsmeistararnir reyna áfram við Alvarez, Liverpool hefur áhuga á Barcola og Cristian Romero gæti verið á förum frá Tottenham. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal hefur kannað möguleikann á að bjóða Viktor Gyökeres (28) sem hluta af tilboði til þess að fá Julián Álvarez (26) frá Atlético Madrid. (TalkSport)
Barcelona mun hefja aftur viðræður um Julián Álvarez (26) eftir heimsmeistaramótið og gæti boðið einn af sínum leikmönnum sem hluta af skiptasamningi. (Mundo Deportivo)
Barcelona vill bjóða Ferran Torres (26) nýjan samning þrátt fyrir áhuga PSG. Félagið hyggst bíða fram í september vegna fjármálareglna. (Mundo Deportivo)
Liverpool hefur haft samband við PSG vegna mögulegra kaupa á Bradley Barcola (23). (TeamTalk)
Arsenal reynir að selja Gabriel Jesus (29) og er AC Milan meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á Brasilíumanninum. (TeamTalk)
Sunderland er við það að ganga frá kaupum á Thomas Meunier (34) eftir að hann yfirgaf Lille. (The Athletic)
Liverpool hefur hafnað nýju tilboði Inter í Curtis Jones (25) þar sem tilboðið, um 27 milljónir punda, náði ekki 30 milljóna punda verðmati félagsins. (TalkSport)
Everton er í viðræðum við Genoa um kaup á Brooke Norton-Cuffy (22). (TeamTalk)
Cristian Romero (28), fyrirliði Tottenham, er sagður á förum frá félaginu í sumar og hefur Barcelona áhuga á argentínska varnarmanninum. (TalkSport)
Umboðsmenn Crysencio Summerville (24) hafa fundað með Roma vegna mögulegra félagaskipta frá West Ham. (Corriere dello Sport)
Gabriel Slonina (22) er á reynslu hjá Strasbourg og eru félagaskipti frá Chelsea í kortunum. (L'Équipe)