Fotbolti.net
14.07.26 - 22:26
Hafþór Örn Laursen

Anton Ingi: Við töluðum um að setja liðið aftur á járnbrautarteinana eftir fyrri umferðina

Auglýsing
Anton Ingi, þjálfari Fram

Anton Ingi, þjálfari Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mér líður vel. Það er alltaf gott að vinna og er tilfinningin því mjög góð'', sagði Anton Ingi, þjálfari Fram, eftir 0-1 sigur gegn Þrótti í 12. umferð Bestu Deildar kvenna.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 1 Fram
„Mér fannst við vera undir í fyrri hálfleik og vorum slappar í því sem við ætluðum okkur að gera. Við skerptum á hlutum í seinni hálfleik og vorum töluvert betri.''

Eins og Anton segir var Framliðið ekki upp á sitt besta í fyrri hálfleik, en hins vegar voru þær mun betri í seinni og Taylor Hamlett skoraði mark Fram stuttu eftir að seinni hálfleikur var flautaður á.

„Við töluðum um að hækka orkustigið, ákvörðunartökur þurftu að vera betri, spila boltanum hraðar á milli okkar og laga varnarleikinn sem við gerðum og gerðum virkilega vel.''

Fram er í fallbaráttu en hefur sigrað sína tvo seinustu leiki og það gegn sterkum andstæðingum, Breiðablik og Þrótti. Í næsta leik fara þær í heimsókn í Fossvoginn og keppa við Víking.

„Við stefnum að því að halda þessari sigurgöngu áfram. Við töluðum um eftir fyrri umferð að setja liðið aftur á járnbrautarteinana og taka hverja stoppustöð fyrir sig. Við höfum stoppað núna á tveimur stöðum og tekið þrjú stig í báðum leikjum og ætlum að gera það í hverri stöðu eftir það.''

Glugginn opnar eftir tvo daga og var Anton spurður út í hvort liðið hefur augastað á einhverjum leikmönnum.

„Já, við vorum fyrirfram búin að semja við Hlín Heiðarsdóttur. Hún kemur úr fyrstu deild í Svíðþjóð og hún verður klár gegn Víkingi. Svo höfum við verið að skoða 1-2 möguleika í viðbót.''


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.