Murielle Tiernan: Sneri aftur á völlinn og fór heim trúlofuð

Murielle Tiernan sneri aftur á völlinn með Stjörnunni í 3-2 sigri gegn Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hún fékk svo bónorð frá kærasta sínum, Sveinbirni Óla Svavarssyni, eftir leikinn.

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Murielle Tiernan sneri aftur á völlinn með Stjörnunni í 3-2 sigri gegn Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann 3-2 sigur á Þór/KA á Samsungvellinum í kvöld en dagurinn varð sérstaklega eftirminnilegur fyrir Murielle Tiernan. Hún kom inn á sem varamaður eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla og eftir leik fékk hún bónorð frá kærasta sínum, Sveinbirni Óla Svavarssyni, á miðjupunktinum fyrir framan liðsfélaga, vini og fjölskyldu.
„Mér líður mjög vel. Það var frábært að komast loksins aftur inn á völlinn og spila með stelpunum. Sem betur fer voru þær búnar að koma okkur aðeins yfir áður en ég kom inn á, þannig ég var ekki of stressuð,“ sagði Murielle eftir leik.
„Það var frábær tilfinning að klára leikinn. Svo var ég mjög hissa og mjög hamingjusöm. Þetta var mjög góður dagur.“
Bónorðið fór fram eftir leik og Murielle viðurkenndi að hana hefði ekki grunað neitt.
„Nei, alls ekki. Við höfum talað mikið um þetta en ég veit ekki, þetta kom mér algjörlega í opna skjöldu.“
„Allir í kringum mig segja að ég hefði átt að átta mig á þessu en ég gerði það ekki. Þannig að já, þetta var mjög gott.“
Murielle hefur verið á Íslandi síðan árið 2018 og virðist heldur betur hafa fest rætur hér á landi.
„Ég elska Ísland. Ég elska fólkið, mér líður vel hér og ég elska eiginlega allt við þetta.“
Hún hefur verið frá síðan í maí vegna meiðsla en segir ökklann orðinn góðan.
„Ég var með lítið brot í ökklanum en það er gróið núna. Mér líður mjög vel í honum. Nú snýst þetta bara um að koma restinni af líkamanum aftur í það að spila fleiri mínútur, þannig að vonandi heldur þetta bara áfram að byggjast upp.“
Aðspurð um markmið Stjörnunnar fyrir framhaldið segir Murielle liðið taka eitt verkefni fyrir í einu.
„Bara einn leik í einu. Við tökum þetta leik fyrir leik og förum ekki fram úr okkur. Við reynum bara að ná í sigur og halda svo áfram í næsta leik.“
Sjáðu trúlofunarhringinn og viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan!

Hún fékk svo bónorð frá kærasta sínum, Sveinbirni Óla Svavarssyni, eftir leikinn.

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir



