Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. ágúst 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chiellini var nálægt því að ganga til liðs við Real Madrid
Mynd: EPA

Giorgio Chiellini fyrrum varnarmaður Juventus var mættur til að fylgjast með sínum fyrrum félögum spila gegn Real Madrid í Los Angeles á dögunum.


Chiellini gekk til liðs við Los Angeles FC frá Juventus í sumar en hann er liðsfélagi Gareth Bale sem einnig skrifaði undir hjá LAFC í sumar en hann kom frá Real Madrid.

Chiellini ræddi við Marca fyrir leikinn en þar sagði hann frá því að hann var nálægt því að ganga til liðs við Real Madrid um árið en hann lék allan sinn feril í Evrópu með Juventus.

„Sannleikurinn er sá að ég hugsaði aldrei um að fara í annað lið í Evrópu á síðustu árum því ég er of tengdur Juventus. Ég var nálægt því að fara til Real Madrid en það var árið 2010, langt langt síðan," sagði Chiellini.

„Ég veit ekki hvað gerðist, ég var ungur. Félögin komust ekki að samkomulagi, mér fannst ég heppinn að eyða öllum mínum ferli hjá Juventus. Auðvitað er Real Madrid frábært félag, ég hef alltaf dýrkað þá þó þeir hafi unnið mig."


Athugasemdir
banner
banner