01.08.26 - 14:12
Ívan Guðjón Baldursson
António Silva skiptir til Bournemouth (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
AFC Bournemouth er búið að festa kaup á portúgalska miðverðinum António Silva sem kemur úr röðum Benfica fyrir 30 milljónir evra.
Silva hefur spilað yfir 180 leiki fyrir uppeldisfélagið en átti aðeins eitt ár eftir af samningi og vildi reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.
Silva er 22 ára gamall og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 20 A-landsleiki fyrir Portúgal. Hann var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið eftir að hafa misst byrjunarliðssætið sitt hjá Benfica undir lok síðasta tímabils.
Hann gerir fimm ára samning við Bournemouth og á að fylla í skarðið sem Marcos Senesi skilur eftir sig með félagaskiptunum til Tottenham.

Our 2026/27 save just got interesting ???????? pic.twitter.com/tt2AWUbnX6
— AFC Bournemouth ???? (@afcbournemouth) August 1, 2026