01.08.26 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson
Brentford kaupir miðjumann frá Lens fyrir metfé (Staðfest)

Mynd: Brentford

Mynd: Brentford
Brentford setti nýtt félagsmet þegar félagið gekk frá kaupum á miðjumanninum Mamadou Sangare frá Lens í dag.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kemur til Brentford fyrir 41,1 milljón punda og verður þar með dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Sangare var stórkostlegur á sínu eina tímabili með Lens. Með hann innanborðs hafnaði liðið í öðru sæti frönsku deildarinnar og vann franska bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Hann er uppalinn hjá Salzburg í Austurríki en hefur einnig leikið með Rapid Vín. Þá á hann að baki 16 A-landsleiki fyrir Malí.
Sangare er fjórði leikmaðurinn sem Brentford fær til sín í sumar á eftir Jaidon Anthony, Jannik Schuster og Callum Wilson.

Sangaré signed ?
— Brentford FC (@BrentfordFC) August 1, 2026
We are delighted to confirm the arrival of Mali international midfielder @msangare2002 from Lens for a club-record fee ??