Fotbolti.net
01.08.26 - 17:24
Brynjar Ingi Erluson

Welbeck til Chelsea (Staðfest)

Welbeck til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur staðfest kaupin á enska framherjanum Danny Welbeck, en hann kemur til félagsins frá Brighton.
Welbeck er 35 ára gamall og hefur verið frábær í liði Brighton undanfarin ár.

Hann skoraði þrettán deildarmörk á síðasta tímabili, sem var hans besta til þessa.

Chelsea vildi bæta nokkrum reynsluboltum í leikmannahópinn fyrir tímabilið og er Welbeck nú mættur til félagsins.

Welbeck er hokinn af reynslu og hefur leikið í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 2008. Hann kom upp úr akademíu Manchester United og lék með aðalliðinu um árabil en hefur einnig spilað með Arsenal, Watford, Sunderland og Preston.

„Það fyllir mann stolti að heyra af áhuga frá Chelsea. Þegar maður þekkir sögu félagsins veit maður að það vill vinna titla og leggur upp með það á hverju einasta tímabili.“

„Það er mikill heiður að ganga til liðs við jafn stórt félag og Chelsea og fram undan eru spennandi tímar. Ég þekki nokkra af strákunum og hef átt frábær samtöl við stjórann. Ég finn strax fyrir tengingu við félagið.“

„Ég er enn með neistann í mér og er tilbúinn að gefa allt sem ég á til að gera stuðningsmennina stolta,“ sagði Welbeck.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.