01.09.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Makelele kominn til Chelsea (Staðfest)
Stjórn Chelsea hefur gefið út að Makelele verði seinustu kaup liðsins. Nú hefur Roman Abramovich komist yfir 100 milljón punda múrinn síðan hann eignaðist liðið í júlí. Makelele er fimmtándi leikmaðurinn sem kemur til liðsins síðan þá. Glen Johnsons varnarmaður West Ham var sá fyrsti til að koma til liðsins en síðan þá hafa ýmis stór nöfn bæst í hópinn.
