01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Srnicek til Portsmouth. (Staðfest)

Pavel Srnicek


Pavel Srnicek

Portsmouth hefur fengið Tékkneska markvörðinn Pavel Srnicek á frjálsri sölu. Srnicek sem er 35 ára hefur leikið 3 seinustu ár með Brescia á Ítalíu. Hann var á leið til Wolves en eftir að Portsmouth sýndi honum áhuga ákvað hann að fara til þeirra frekar. Landi hans Patrik Berger er hjá Portsmouth auk þess að hann þekkir Shaka Hislop. Srnicek lék yfir 150 leiki með Newcastle í Ensku úrvalsdeildinni á seinasta áratug.
