Fotbolti.net
01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Pétur Marteinsson til Hammarby (Staðfest)

Pétur Marteinsson hefur snúið aftur til Hammarby.

Pétur Marteinsson hefur snúið aftur til Hammarby.

Canon
Varnarmaðurinn sterki Pétur Marteinsson hefur gengið til liðs við Hammarby. Í íþróttaættinum á Útvarp Sögu hjá Valtý Birni Valtýssyni sagði Pétur að hann hefði fengið starfslokasamning við Stoke á laugardaginn og skrifað undir samning við Hammarby í dag. Reyndar skrifaði hann aðeins undir tveggja mánaða samning en hann mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið þegar að hann kemur til Svíþjóðar eftir landsleik Íslendinga og Þjóðverja. Pétur sem er þrítugur byrjaði feril sinn sem atvinnumaður hjá Hammarby árið 1996 og lék þar til ársins 1998. Hann lék alls 70 leiki fyrir félagið og skoraði 4 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.