Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. september 2021 07:00
Victor Pálsson
„Megum ekki hugsa um Ronaldo lengur"
Mynd: Getty Images
Leikmenn og stuðningsmenn Juventus mega ekki hugsa lengur um Cristiano Ronaldo að sögn stjóra liðsins, Massimiliano Allegri.

Ronaldo var aðal vopn Juventus í sókninni síðustu tvö ár en hann er nú genginn í raðir Manhcester United á Englandi á ný.

Juventus hefur byrjað tímabilið virkilega illa með jafntefli gegn Udinese og svo tapi heima gegn Empoli, 1-0.

„Cristiano var í þrjú ár hjá Juventus og hann skoraði mörk sem hann er mjög góður í. Hann er framúrskarandi leikmaður," sagði Allegri.

„Við hins vegar megum ekki hugsa um Ronaldo héðan í frá. Ég er með fínan leikmannahóp en við verðum að átta okkur á því að við getum ekki stjórnað öllum leikjum."

„Við þurfum að standa saman og það mun hjálpa okkur í framtíðinni. Ég er bjartsýnn að venju."
Athugasemdir
banner
banner
banner