14.09.26 - 17:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mögnuð breyting eftir komu Olivers - „Klárlega einn af betri varnarmönnum deildarinnar"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Óli og Jökull hafa spilað vel með Oliver aftast hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur heldur betur þétt raðirnar eftir erfiða byrjun á Íslandsmótinu og eftir að sumarglugginn opnaði er liðið með bestu vörnina í deildinni.
Jökull Andrésson hefur verið mjög góður í markinu, fyrirliðinn Ísak Óli Ólafsson hefur spilað vel og Oliver Stefánsson hefur komið frábærlega inn eftir komuna frá Póllandi. Oliver er 24 ára miðvörður sem hefur hjálpað FH-ingum að líma saman vörnina. Liðið hefur fjórum sinnum haldið hreinu og fengið á sig átta mörk í níu leikjum frá komu Olivers.
FH hefur einungis tapað tveimur leikjum frá komu Olivers og hann var ekki með í seinna tapinu, gegn Þór fyrir norðan fyrir rúmri viku síðan. Þar átti FH ekki sinn besta leik, en sá leikur tapaðist 1-0. Hitt tapið var gegn toppliði deildarinnar, en það er eini leikurinn sem liðið hefur fengið á sig meira en eitt mark (4) frá komu Olivers.
Með Oliver í liðinu hefur FH fengið á sig sjö mörk í átta leikjum eða 0,875 mörk í leik. Í hinum 15 leikjunum fékk FH á sig 32 mörk eða 2,13 mörk að meðaltali í leik. Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, ræddi við Fótbolta.net um Olivers.

„Í byrjun tímabils var mikið rót á varnarlínunni okkar, hvort sem það voru hafsentar eða bakverðir. Við vorum búnir að bæta varnarleikinn okkar töluvert áður en hann kom, en þegar hann kom þá fundum við einhverja blöndu sem virkar. Oliver og Ísak ná mjög vel saman og Jökli líður vel með þá fyrir framan sig. Við erum búnir að fá mjög mikla festu í bakverðina okkar, Baldur Kári (Helgason) var t.d. framúrskarandi á móti KA í gær, honum líður mjög vel með Oliver við hliðina á sér. Oliver er góður stjórnandi, líður vel á boltanum og er óhræddur að láta finna fyrir sér," segir Davíð
„Oliver var auðvitað einn af okkar allra efnilegustu leikmönnum þegar fór frá ÍA til Svíþjóðar á sínum tíma. Hann var mjög óheppinn með veikindi og meiðsli í kjölfarið á því. Hann átti svo ekki auðveldan tíma í Póllandi, spilaði ekkert brjálæðislega mikið, en hefur sýnt að hann er klárlega einn af betri varnarmönnunum í þessari deild. Hann hefur hjálpað okkur að búa til festu og öryggi í öftustu fimm; varnarlínu og markmanni."
Frammistaðan hefur komið Davíð á óvart.
„Við fengum hann inn af því við höfðum trú á því að hann gæti bætt liðið okkar. En ég var ekkert endilega búast við því að við værum að fara halda hreinu í öðrum hverjum leik. Hann kemur frá Póllandi þar sem hann var ekki búinn að spila mikið. Það er alltaf spurningarmerki hvernig menn koma inn í mitt tímabil. Það kom mér á óvart hversu fljótt og vel hann small inn í liðið."
„Hann er búinn að vera mjög öflugur. Við eigum fjóra leiki eftir, erum í fínni stöðu og hann og allir hinir þurfa að átta sig á því að það þarf að klára mótið eins og menn. Við þurfum að sjá til þess að við séum Bestu deildar lið á næsta ári," segir Davíð.
Unun að spila með honum
Ísak Óli ræddi um Oliver í viðtali í Útvarpsþættinum Fótbolti.net í síðasta mánuði. „Oliver er frábær leikmaður og hefur verið allan sinn feril. Hann hefur gengið í gegnum alls konar sem er kannski eðlilegt að ganga í gegnum; blóðtappann og allt það. Hann er frábær karakter og þvílíkt gaman að spila með honum, hann er líka frábær í fótbolta. Það er algjör unun að spila með honum og okkur vantaði kannski þennan gæja til að setja punktinn yfir frábæra varnarlínu. Ef hann heldur svona áfram þá verður hann ekkert rosalega lengi á Íslandi; örvfættur hafsent," sagði Ísak Óli fyrir um mánuði síðan.
Á miðlum FH var Oliver valinn leikmaður mánaðarins í ágúst.
FH er fjórum stigum fyrir ofan fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir af mótinu.