14.09.26 - 18:37
Magnús Atlason
Byrjunarlið Víkings og Keflavíkur: Enginn Gylfi

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hóp í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hóp í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tekur á móti Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu. Leikurinn hefst á slaginu 19:15 en byrjunarliðin hafa verið opinberuð.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 0 Keflavík
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir eina breytingu á sínu liði frá 2-2 jafnteflinu gegn Fram í síðustu umferð. Sveinn Margeir Hauksson kemur inn í liðið í stað Gylfa Þórs Sigurðssonar sem er ekki í hóp í dag. Gylfi fór meiddur af velli í hálfleik gegn Fram en Sölvi hélt þá að ekki væri nema um stífleika í vöðva að ræða.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 2-1 tapinu gegn Val í síðustu umferð. Elvis Bwomono og Mate Simicic koma inn í byrjunarliðið í stað Axels Inga Jóhannessonar og Eiðs Orra Ragnarssonar. Axel vermir bekkinn en Eiður Orri er ekki í hóp þar sem hann var lánaður til Keflavíkur frá Víkingi.

Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 4. Peter Oliver Ekroth (f)
- 9. Helgi Guðjónsson
- 11. Daníel Hafsteinsson
- 15. Róbert Orri Þorkelsson
- 21. Aron Elís Þrándarson
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 30. Sveinn Margeir Hauksson
- 69. Ármann Ingi Finnbogason
- 77. Stígur Diljan Þórðarson
Byrjunarlið Keflavík
- 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
- 2. Elvis Okello Bwomono
- 4. Ígnacio Heras Anglada
- 6. Sindri Snær Magnússon (f)
- 7. Dagur Ingi Valsson
- 10. Stefan Alexander Ljubicic
- 11. Muhamed Alghoul
- 16. Mate Simicic
- 20. Marin Brigic
- 21. Alpha Conteh
- 22. Ásgeir Páll Magnússon
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | KR | 23 | +29 | 47 |
| 3 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |