14.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Lampard er kannski ekki nægilega góður fyrir úrvalsdeildina

Frank Lampard, stjóri Coventry.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Frank Lampard, stjóri Coventry.

Mynd: EPA
Nýliðar Coventry City eru stigalausir í ensku úrvalsdeildinni og hafa ekki náð að skora í fyrstu fjórum leikjum sínum. Liðið tapaði 0-5 fyrir Brighton í gær.
Coventry vann Championship-deildina á síðasta tímabili og blaðamaðurinn Julien Laurens setur spurningamerki við það hvort stjórinn Frank Lampard hafi það sem þarf til að ná árangri í deild þeirra bestu.

TENGT EFNI
England: Brighton fór illa með nýliðana - Dunk með eitt flottasta mark ársins
Lampard hefur átt misjöfnu gengi að fagna sem stjóri í deildinni, með Chelsea og Everton.
„Ég veit ekki hvort Frank Lampard sé nógu góður fyrir úrvalsdeildina,“ sagði Laurens við breska ríkisútvarpið.
„Af því sem ég hef séð er hann mjög góður stjóri í Championship-deildinni en virðist einfaldlega ekki tilbúinn að stíga skrefið upp í úrvalsdeildina. Það er erfitt að stýra Coventry í deildinni en félagið eyddi háum fjárhæðum í sumar."
„Við ættum kannski ekki að bera saman lið sem komast upp um deild, en það er óhjákvæmilegt að horfa til hinna tveggja liðanna sem fylgdu þeim upp, Hull og Ipswich. Það blasir við að árangurinn hefur ekki verið nógu góður hingað til. Ég veit ekki hvort hann hafi það sem þarf til að snúa taflinu við og halda liðinu í deildinni."
„Vissulega bjuggust margir við að liðið myndi falla en gengi hans í úrvalsdeildinni hefur ekki verið nægilega gott hingað til. Það gæti vel verið að hann sé ekki nógu góður fyrir úrvalsdeildina."

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 4 | +7 | 12 |
| 2 | Man City | 4 | +6 | 12 |
| 3 | Hull City | 4 | +3 | 8 |
| 4 | Brighton | 4 | +8 | 7 |
| 5 | Chelsea | 4 | +1 | 7 |
| 6 | Brentford | 4 | +3 | 6 |
| 7 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 8 | Everton | 4 | +2 | 6 |
| 9 | Ipswich Town | 4 | -3 | 6 |
| 10 | Newcastle | 3 | +2 | 5 |
| 11 | Leeds | 3 | +1 | 5 |
| 12 | Nott. Forest | 4 | 0 | 5 |
| 13 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 16 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 17 | Tottenham | 4 | -5 | 2 |
| 18 | Fulham | 4 | -3 | 1 |
| 19 | Aston Villa | 4 | -6 | 1 |
| 20 | Coventry | 4 | -10 | 0 |