Fotbolti.net
14.09.26 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson

Lisandro Martínez: Óásættanlegt í bestu deild í heimi

Lisandro Martínez: Óásættanlegt í bestu deild í heimi
Canon

Mynd: EPA

Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martínez var í varnarlínu Manchester United sem tapaði nágrannaslagnum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu
TENGT EFNI

Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu

Man City missti Phil Foden af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik en stóð þrátt fyrir það uppi sem sigurvegari. Norðmaðurinn markaóði Erling Braut Haaland skoraði eina mark leiksins, sem dómarasambandið hefur viðurkennt að hefði þó aldrei átt að standa útaf Enzo Fernández sem hafði áhrif á leikinn úr rangstöðu.

Martínez tók ákvörðun um að dekka Fernández en boltinn barst til Haaland sem skoraði. Í ljós kom að Fernández var í rangstöðu en samkvæmt dómarateyminu hafði hann ekki áhrif á leikinn, þrátt fyrir að skutla sér í átt að boltanum í tilraun til að skora.

„Ég get ekki skilið reglurnar. Hann (Enzo Fernández) var þarna beint fyrir framan mig svo ég fór til að verjast honum, þess vegna var Haaland laus á fjarstönginni. Ég er að reyna að halda mér rólegum núna," sagði tilfinningaríkur Martínez stuttu eftir lokaflautið.

„Það er mjög erfitt fyrir mig að hafa stjórn á sjálfum mér og tilfinningunum mínum eftir að hafa tapað útaf þessu atviki. Við töpuðum nágrannaslagnum, við töpuðum þremur stigum á heimavelli.

„Á hverju undirbúningstímabili koma dómararnir til að tala við okkur á æfingasvæðinu. Þeir taka eina og hálfa klukkustund í að útskýra reglurnar og eru mjög sjálfsöruggir og vissir í sinni sök, en svo gerast svona atvik þar sem fimm eða sex mismunandi dómarar taka ranga ákvörðun. Þetta er óásættanlegt í bestu deild í heimi."


Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái
TENGT EFNI

Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái

Lisandro Martínez: Óásættanlegt í bestu deild í heimi
Canon

Mynd: EPA

Lisandro Martínez: Óásættanlegt í bestu deild í heimi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.