Fotbolti.net
01.09.26 - 18:47
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Atlético fær David frá Juventus (Staðfest)

Atlético fær David frá Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Kanadíski landsliðsmaðurinn Jonathan David er mættur til Atlético Madríd á láni frá Juventus.
Juventus hefur samþykkt að lána David til Atlético út tímabilið en í samningnum er 25 milljóna evra kaupákvæði. Atlético hefur staðfest komu Kanadamannsins sem styrkir sóknarlínu liðsins verulega.

Juventus fékk Nick Woltemade að láni frá Newcastle United í staðinn.

David er 26 ára og gekk til liðs við Juventus frá Lille á síðasta ári. Hann skoraði átta mörk í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með ítalska félaginu.

Kanadamaðurinn komst í sögubækurnar í sumar þegar hann skoraði þrennu í 6-0 stórsigri gegn Katar. Hann varð þar með fyrsti norður-ameríski leikmaðurinn í 96 ár til að skora þrennu á heimsmeistaramóti. Það reyndist þó eini góði leikur hans á mótinu og var David harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína að því loknu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.