Fotbolti.net
01.09.26 - 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Chelsea kaupir þann heiðarlega (Staðfest) - Klókir í skráningu

Chelsea kaupir þann heiðarlega (Staðfest) - Klókir í skráningu
Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Honest Ahanor frá Atalanta. Ahanor er 18 ára varnarmaður sem verður formlega leikmaður Chelsea næsta sumar.

Chelsea vill lána hann til Crystal Palace, svo hann fái fleiri tækifæri á mínútum, en þar sem Axel Disasi er þegar á láni hjá Palace mun Chelsea ekki skrá Ahanor sem sinn leikmann fyrr en á næsta ári og fer varnarmaðurinn ungi því á láni frá Atalanta til Palace.
Reglur í úrvalsdeildinni koma í veg fyrir að félög láni fleiri en einn leikmann til sama félagsins.

Ahanor kom til Atalanta í fyrra frá Genoa og hefur spilað 22 deildarleiki fyrir félagið, níu Meistaradeildarleiki og tvo A-landsleiki fyrir Ítalíu. Landsleikirnir voru í sumar þegar Ítalir tefldu fram mjög ungu landsliði.

Ahanor hefur sagt frá því að ítalska goðsögnin Paolo Maldini sé fyrirmynd sín í fótboltanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.