01.09.26 - 23:18
Brynjar Ingi Erluson
Chilwell aftur til Palace (Staðfest) - Sosa verður liðsfélagi Ísaks

Mynd: Crystal Palace

Mynd: Crystal Palace
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace hafa fengið enska vinstri bakvörðinn Ben Chilwell aftur til félagsins, en hann kemur frá franska félaginu Strasbourg.
Crystal Palace hafði samband við Strasbourg seint í kvöld og tókst að ganga frá allri pappírsvinnu áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Chilwell er 29 ára og hefur áður leikið með Palace. Hann kom á láni frá Chelsea fyrri hluta síðasta árs og varð enskur bikarmeistari með liðinu áður en hann gekk til liðs við Strasbourg um sumarið. Nú er vinstri bakvörðurinn kominn aftur á Selhurst Park.
„Það er geggjað að vera kominn aftur og gaman að sjá nokkur kunnugleg andlit. Ég get ekki beðið eftir að hitta strákana og stuðningsmennina og koma mér aftur inn í hlutina,“ sagði Chilwell við komuna.
Króatíski bakvörðurinn Borna Sosa er á sama tíma farinn til Kölnar á láni út tímabilið. Þar verður hann liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar í þýsku úrvalsdeildinni.

Welcome back to South London ????
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) September 1, 2026
We are delighted to confirm that FA Cup-winning defender Ben Chilwell has returned to the club. pic.twitter.com/Q2kFW0MlHe
Borna Sosa has joined FC Cologne on a season-long loan deal.
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) September 1, 2026
Everybody at Crystal Palace wishes Borna the very best of luck for his spell in Germany ??????
?? https://t.co/2PFaV9h780 pic.twitter.com/ueplmBcr8P