Fotbolti.net
01.09.26 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Como fær ítalskan landsliðsmann (Staðfest)

Como fær ítalskan landsliðsmann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Como var spútnik lið ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og náði afar óvænt Meistaradeildarsæti undir öruggri leiðsögn Cesc Fábregas.
Kambwala til Como (Staðfest)
TENGT EFNI

Kambwala til Como (Staðfest)

Ungt lið Como gerði frábæra hluti og tókst að halda sínum bestu mönnum innan félagsins á meðan aðrir réru á ný mið. Sergi Roberto, Alberto Moreno, Álvaro Morata og Mergim Vojvoda eru meðal leikmanna sem hafa yfirgefið félagið en nýir menn eru komnir inn í staðinn, þar á meðal ítalski landsliðsmaðurinn Samuele Ricci.

Ricci er miðjumaður sem gerði frábæra hluti með Torino og vann sér inn sæti í ítalska landsliðinu áður en hann var keyptur til AC Milan í fyrrasumar. Þar tókst honum ekki að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu og kemur til Como á lánssamningi með kaupmöguleika.

Como borgar 1,5 milljón evra til að fá Ricci á láni og getur keypt hann fyrir 22 milljónir til viðbótar. Það er svipað verð og Milan greiddi fyrir Ricci í fyrra.

Ricci er níundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Como á annríku sumri. Trevoh Chalobah var keyptur úr röðum Chelsea og auk þeirra eru Mattia Liberali, Luis Milla, Willy Kambwala, Yan Couto og Kaiki meðal nýrra leikmanna liðsins.

Como fær ítalskan landsliðsmann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.