01.09.26 - 19:04
Brynjar Ingi Erluson
Danso frá Tottenham til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Sunderland

Mynd: Sunderland
Austurríski miðvörðurinn Kevin Danso er kominn til Sunderland á láni frá Tottenham. Kaupskylda er í samningnum sem virkjast ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Varnarmaðurinn kom til Tottenham á láni frá Lens fyrir tveimur árum og stóð sig frábærlega þegar liðið vann Evrópudeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins. Tottenham gerði félagaskiptin síðan varanleg um sumarið fyrir 21 milljón punda.
Danso lék 35 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð þegar Tottenham barðist í neðri hluta úrvalsdeildarinnar og rétt slapp við fall.
Hann var í leikmannahópnum gegn Brentford í fyrstu umferð tímabilsins en var ekki með í síðasta leik. Sunderland setti sig í samband við Tottenham á dögunum og hefur nú fengið varnarmanninn á láni út tímabilið.
Uppfylli Danso ákveðin skilyrði verður Sunderland skylt að kaupa hann fyrir 22,5 milljónir punda. Þá tekur við fjögurra ára samningur með möguleika á eins árs framlengingu.

Welcome to Sunderland, Kevin Danso! ?? pic.twitter.com/PbEsrcc4gJ
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) September 1, 2026