01.09.26 - 13:49
Kári Snorrason
Diaby snýr aftur til Leverkusen (Staðfest)

Mynd: Bayer Leverkusen

Mynd: Bayer Leverkusen
Franski vængmaðurinn Moussa Diaby er genginn í raðir Bayer Leverkusen frá Al-Ittihad. Kaupverðið nemur um 37 milljónum evra.
Diaby þekkir Leverkusen vel en hann lék með liðinu frá 2019 til 2023 og skoraði þar 49 mörk í 172 leikjum. Þaðan hélt hann til Englands árið 2023 og keypti Aston Villa Frakkann á metfé.
Hann var í Birmingham í aðeins eitt ár en þaðan fór hann til Sádi-Arabíu og gekk í raðir Al-Ittihad.
Diaby á að baki ellefu landsleiki fyrir Frakkland en hann hefur ekki verið valinn frá því að hann hélt til Sádí.

HE'S BACK! ????@MoussaDiaby_19 pic.twitter.com/dkSRzSSX7u
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) September 1, 2026